Um fyrirtækið

Neyðarþjónustan er núna Lásar ehf.

Lásar – Neyðarþjónustan ehf. (áður Neyðarþjónustan) var stofnuð árið 1988 og var lengst af staðsett við Laugaveg 168 í Reykjavík. Nýir eigendur tóku við fyrirtækinu þann 1.ágúst 2007. Haustið 2012 flutti Neyðarþjónustan svo í 300 fm leiguhúsnæði við Skútuvog 11 í Reykjavík, með stórbættri viðgerðaaðstöðu innandyra. Á sama tíma var kerfislykladeild Húsasmiðjunnar keypt svo lyklakerfin sem Neyðarþjónustan hefur umsjón með eru orðin rúmlega 7000 talsins, víðs vegar um landið. Fyrirtækið fagnaði 30 ára starfsafmæli 2018 og hefur því mikla reynslu á sínu sviði. Neyðarþjónustan flutti að Skemmuvegi 4, Kópavogi þann 23.okt 2018 í eigið húsnæði fyrir neðan Byko í Kópavogi. Neyðarþjónustan breytti um nafn á vordögum 2020 áfram á sömu kennitölu – þar sem sjálf neyðarþjónustan var orðin minni og minni hluti af rekstrinum.


Lásar – Neyðarþjónustan sinna almennri  lásasmíði, lásaviðgerðum og hvers konar neyðaropnunum, hvort sem um er að ræða húsnæði, bíla eða hirslur.


Lásar – Neyðarþjónustan reka verkstæði og verslun þar sem seldar eru lásatengdar vörur; húslyklar, bíllyklar, sílindrar, róshettur, snerlar, skrár, læsingar, hurðapumpur, öryggisskápar, öryggiskerfi, hengilásar og aðgangsstýrikerfi. Forritun og smíði bíllykla er stór þáttur í starfseminni. Einnig uppsetning, ráðgjöf og viðgerðavinna.


Við starfrækjum neyðaraðstoð/útkallsþjónustu vegna hurðaopnana, bílaopnana og hirsluopnana. Hafðu samband í síma: 510-8888 (1).


Lásar – Neyðarþjónustan sinnir einnig viðhaldi læsinga og hurðapumpa í fjölbýlishúsum. Til dæmis ef sílinder er brotinn, snýst í hringi eða erfitt er að opna, hurðapumpa lokar illa, hurðapumpa lekur osfrv. Hér er hægt að senda okkur línu og panta þjónustu. 


Lásar – Neyðarþjónustan vill vera í fremstu röð á sviði bílaopnana og bíllyklasmíði og sérhæfir sig í smíði og forritun fjarstýringalykla fyrir langflestar bíltegundir – jafnvel þó allir lyklar séu týndir.


Lásar – Neyðarþjónustan leggur mikla áherslu á skjóta og góða þjónustu og vönduð vinnubrögð og vinnur eftir siðareglum ameríska lásasambandsins (ALOA).


Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar t.d. undir Hafa samband“ flipanum hér á heimasíðunni. Ekki er síðra að fá hrós þegar við stöndum okkur vel.


Hjá okkur fá starfsmenn bestu þjálfun sem í boði er hverju sinni. Lásasmiðir okkar eru metnaðarfullir og leggja sig fram um afla sér þekkingar á sínu sviði og fylgjast með nýjungum, enda örar tækniframfarir á hverju ári.

Til þess að svo geti verið eru þeir duglegir að sækja námskeið í útlöndum og njóta góðs af frábæru tengslaneti við aðra lásasmiði og samtök um allan heim. Lásasmiðir okkar þurfa að hafa víðtæka þekkingu á nánast öllu sem snýr að lásum, enda markaðurinn hér á landi ekki nógu stór til að hægt sé að sérhæfa sig á þröngu sviði. Starfið verður hins vegar skemmtilera fyrir vikið og verkefnin fjölbreyttari.


Innan Neyðarþjónustunnar má finna eftirfarandi félagsskírteini og viðurkenningar á starfseminni:

ALOA – Associated Locksmiths of America

SAVTA – Safe & Vault Technicians Association

ELF – European Locksmith Federation

ALA – Autolocksmiths Association

D-vottun (gæðavottun) Samtaka Iðnaðarins


Lásar – Neyðarþjónustan búa yfir einum stærsta lyklalager landsins. Það skiptir því engu máli hvort lykilinn er týndur eða aukalykla vantar, við getum aðstoðað þig með allt sem því tengist og reynum eftir fremsta megni að bjóða þér þjónustu samdægurs til að leysa vandann.

Íslenskt samfélag er mjög kvikt og Lásar – Neyðarþjónustan hafa fjárfest mikið í tölvum og öðrum búnaði til að vera í fremstu röð og geta veitt Íslendingum góða þjónustu, hratt og örugglega.


Sömu eigendur eru að Neyðarþjónustan ehf, kt. 661107-1380. Einnig er innan þessarar samsteypu fyrirtækið Lásasmiðurinn ehf. kt. 701107-0630.

Hafa samband

Hér erum við